Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Landsnet og íslenska ríkið af kröfu um að ákvörðun um eignarnám í óskiptu landi Reykjahlíðar vegna Kröflulínu 4 og 5, frá 14. október 2016, yrði felld úr gildi.

Þetta þýðir að framkvæmdir við lagningu raflínunnar sem tryggja á kísilveri á Bakka við Húsavík rafmagn getur haldið áfram eftir Páska.

Miklir hagsmunir í húfi

Nils Gústavsson framkvæmdastjóri Framkvæmda- og rekstrarsviðs Landsnets segir niðurstöðuna vera í samræmi við væntingar Landsnets.

„Það er aldrei gott að þurfa að óska eftir eignarnámi en miklir hagsmunir eru í húfi með tengingu Þeistareykjavirkjunar og iðnaðarsvæðisins á Bakka við flutningskerfið,“ segir Nils. „Er það von okkar að stefnendur í málinu uni niðurstöðu héraðsdóms.“

Ekki náðist samningar við 2 af 19 landeigendum

Ekki náðust samningar við alla sameigendur að óskiptu landi Reykjahlíðar um framkvæmdina og leitaði Landsnet því að loknu löngu samningaferli eftir heimild atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til eignarnáms.

Samningar hafa náðst við 17 af 19 sameigendum Reykjahlíðar sem samtals eiga um 92% eignarhluta jarðarinnar.

Sé litið til línuleiðarinnar frá Kröflu til Bakka liggja fyrir samningar við landeigendur um 99% nauðsynlegra landsréttinda, þ.e.a.s. við alla aðra en þá tvo landeigendur að óskiptu landi Reykjahlíðar sem kröfðust ógildingar eignarnámsins.

Hver og einn fær 2,5 milljón króna bætur

Þann 22. febrúar 2017 lauk mati á eignarnámsbótum til handa þeim tveimur landeigendum sem að málshöfðuninni stóðu.

Í úrskurði sínum ákvað matsnefnd eignarnámsbóta að bætur til landeigenda sem fara með 7,81% eignarhlut að hinu óskipta landi Reykjahlíðar næmu kr. 2.519.392. Boði Landsnets um greiðslu eignarnámsbóta í kjölfar úrskurðar matsnefndarinnar var hafnað.

34 möstur í landi Reykjahlíðar

Kröflulína 4 liggur frá Kröfluvirkjun að Þeistareykjum. Línan er um 33 km að lengd með 105 möstur, þar af 34 möstur í landi Reykjahlíðar.

Vinna við vegslóð og undirstöður mastra er langt komin nema í landi Reykjahlíðar, á um 10 km kafla, þar sem vinna er ekki hafin.

Vinna við tengivirki í fullum gangi

Þeistareykjalína 1 liggur frá Þeistareykjum að iðnaðarsvæðinu á Bakka. Línan er um 28 km löng með 88 möstur.

Vinna við vegslóð og undirstöður er langt komin. Á báðum línuleiðunum er búið að reisa 20 möstur og setja saman önnur 15 sem bíða uppsetningar.

Vinna hefst aftur eftir páska en stór hluti efnis í línurnar er kominn til landsins. Vinna við byggingu þriggja tengivirkja Landsnets vegna framkvæmdanna, við Kröflu, Þeistareyki og á Bakka er í fullum gangi.