Samninganefnd Sjómannasambands Íslands hittist á fundi í gær þar sem lögð var lokahönd á kröfugerð sambandsins í komandi kjarasamningaviðræðum þess og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Kröfugerðin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nefndarinnar og sendi fundurinn frá sér ályktun sem dregur fram áhersluatriði komandi viðræðna frá hendi sjómanna. Þar er verðlagning sjávarfangs áberandi en ályktunin, sem formaður félagsins Valmundur Valmundsson, er skrifaður fyrir ber yfirskriftina „Glataðir milljarðar?“

Ályktunin fer hér á eftir:

„Samninganefnd Sjómannasambands Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að láta fara fram óháða rannsókn á söluvirði afurða í íslenskum sjávarútvegi.

Miðað við fréttir undanfarinna mánaða má ætla að milliverðlagning á sjávarfangi sé mjög algeng. Ætla má að íslenskt þjóðarfélag verði af gríðarlegum fjármunum ef rétt reynist. Það er því skýlaus krafa samninganefndar Sjómannasambands Íslands að fram fari vönduð, óháð opinber rannsókn á endanlegu söluvirði útflutnings sjávarafurða og hvað af raunverulegum verðmætum skilar sér til Íslands.

Einnig áréttar samninganefnd Sjómannasambands Íslands áhyggjur sínar af endurvigtunarleyfum fiskvinnsluhafa á Íslandi. Ítrekað hefur verið sýnt fram á mismun á ísprósentu. Mjög mikill munur hefur verið staðfestur ef Fiskistofa stendur yfir eða ekki.

Í þessum málum báðum eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir bæði sjómenn og þjóðfélagið í heild sinni.“