Skilanefnd Glitnis hefur, fyrir hönd kröfuhafa, ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi við íslenska ríkið og eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Þessa ákvörðun tók skilanefnd Glitnis eftir ítarlega áreiðanleikakönnun sem framkvæmd hefur verið af hálfu ráðgjafa Glitnis á rekstri Íslandsbanka.

Með þessu lýkur uppgjöri vegna þeirra eigna sem færðar voru frá Glitni til Íslandsbanka við fall bankanna í október á síðasta ári. Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og íslenska ríkisins sem undirritaðir voru þann 13. september síðastliðinn mun ríkið jafnframt veita bankanum 25 milljarða króna víkjandi lán til að styrkja eiginfjár- og lausafjárstöðu bankans segir í tilkynningu.

Þetta er mikilvægur áfangi í framtíðaruppbyggingu íslensks fjármálakerfis. Aðkoma kröfuhafa að Íslandsbanka mun styrkja samstarf bankans við erlendar fjármálastofnanir. Þá hefur þessi niðurstaða það einnig í för með sér að kostnaður ríkisins vegna fjármögnunar bankans verður tæpum 37 milljörðum króna minni en ella.

Ríkið skipar einn stjórnarmann

Ákvörðun skilanefndarinnar er tekin með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Skilanefnd Glitnis mun fara með eignarhald bankans fyrir hönd kröfuhafa í gegnum sérstakt eignarhaldsfélag. Glitnir mun skipa 4 stjórnarmenn af 5 í stjórn bankans en íslenska ríkið mun skipa einn stjórnarmann.

Samkvæmt samningum skilanefndar Glitnis og stjórnvalda frá 13. september síðastliðnum gátu kröfuhafar í Glitni valið milli tveggja kosta. Annars vegar að eignast 95% hlut í Íslandsbanka og hins vegar að fá greiðslu í formi skuldabréfa útgefnum af Íslandsbanka og eignast kauprétt á allt að 90% af hlutafé bankans á næstu fimm árum.

Það er niðurstaða skilanefndar Glitnis eftir ítarlega skoðun að yfirtaka á 95% hlut í Íslandsbanka muni skila mestum verðmætum til kröfuhafa.  Þetta mat er meðal annars byggt á áliti þeirra ráðgjafa sem Glitnir hefur unnið með, en meðal þeirra má nefna sérfræðinga frá fjárfestingabankanum UBS og lögfræðifyrirtækinu Morrison & Foerster.