Allir sem sendu inn kröfu í kröfu í tryggingafé eftir rekstrarstöðvun Gamanferða ættu nú að hafa fengið tilkynningu um niðurstöðuna. Byrjað verður að greiða samþykktar kröfur á næstu dögum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Ferðamálastofu .

Í tilkynningunni segir jafnframt að alls hafi Ferðamálastofu borist 1.044 kröfur en rekstrarstöðvunin hafi hins vegar haft áhrif á ferðaáætlanir yfir 3.000 manns. Vinna Ferðamálastofu í kjölfarið hafi miðað að því að gera fólki kleift að nýta eins og frekast var kostur þá þjónustu sem það hafði þegar bókað og greitt fyrir eða greitt inn á. Þannig hafi í fjölmörgum tilfellum verið hægt að nýta hluta pakkaferðar, t.d. tónleikamiða, hótelgistinu eða flug.

„Markmiðið var að nýta sem best tryggingafé ferðaskrifstofunnar með það fyrir augum að fólk fengi til baka það sem greitt hafði verið fyrir ferðir eða hluta ferð sem ekki var hægt að fara. Þetta tókst því árangurinn af starfi Ferðamálastofu varð sá að trygging Gamanferða dugði fyrir samþykktum kröfum. Þannig kom ekki til þess að skerða þyrfti greiðslur til þeirra sem áttu réttmæta kröfu. Heildarfjárhæð krafna voru tæpar 203 milljónir. Af 1.044 kröfum voru 980 samþykktar, þar af 36 að hluta. Heildarfjárhæð samþykktra krafna voru tæpar 190 milljónir. Í 44 tilfellum voru kröfur dregnar til baka og 20 var hafnað,“ segir í tilkynningunni.