Á kröfuhafafundi Hf. Eimskipafélags Íslands í dag voru greidd atkvæði um nauðasamningsfrumvarp félagsins.Atkvæði féllu þannig að 100% kröfuhafa greiddu atkvæði með frumvarpinu og var það því samþykkt samhljóða.

Næstu skref verða þau að félagið mun leggja skriflega kröfu um staðfestingu nauðasamnings fyrir héraðsdómara í næstu viku, ásamt yfirlýsingu umsjónarmanns, Garðars Garðarsson, hrl.

“Fjárhagsleg endurskipulagning Eimskips er búin að standa yfir í allmarga mánuði. Nú er stærsta áfanganum náð sem var að skapa Eimskip eðlileg rekstrarskilyrði og leggja grunn að framtíð félagsins.  Stjórn og starfsmenn félagsins eru þakklátir kröfuhöfum fyrir stuðning við félagið á erfiðum tímum. Ég vil þakka starfsmönnum  og viðskiptavinum félagsins fyrir stuðning og velvilja í garð þess á meðan á þessu ferli stóð. Án þeirra stuðnings hefði róðurinn verið vonlaus. Flutningastarfsemi félagsins er nú tryggð svo og störf um 1.500 starfsmanna. Mikilvægt á þessum tímamótum fyrir íslenskt atvinnulíf er að öll hjól atvinnulífsins fari nú að snúast á fullum afköstum. Með þessum áfanga er Eimskip að varða leiðina að endurreisn íslenskra fyrirtækja þjóðinni til heilla," segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands, í tilkynningu.