Allt hlutafé Atorku Group hefur nú verið fært niður og kröfuhafa félagsins tekið yfir rekstur þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en á hluthafafundi í dag voru kjörnir í stjórn félagsins fulltrúar kröfuhafa en á hluthafafundi þann 22. janúar 2010 að færa niður hlutafé félagsins og með því efna nauðasamning félagsins sem kröfuhafar samþykktu þann 10. desember 2010.

Að auki var samþykkt að samþykktum félagsins yrði breytt í þá veru að ekki verði kjörnir varamenn í stjórn.

Nýja stjórn Atorku Group hf. skipa Þórður Ólafur Þórðarson stjórnarformaður, Jakob Bjarnason, Einar Páll Tamini, Halldór Bjarkar Lúðvígsson og Gunnar V. Engilbertsson.

Með þessu lýkur nauðasamningsferli félagsins sem staðið hefur frá síðastliðnu vori sem fram fór í samvinnu fráfarandi stjórnar Atorku Group og kröfuhafa félagsins. Fram kemur í tilkynningunni að helstu verkefni nýrrar stjórnar á komandi mánuðum verði að leita leiða til þess að hámarka virði eignasafns Atorku Group og ráðstafa andvirði eignasafnsins til hluthafa félagsins í samræmi við ákvæði nauðasamnings félagsins.

Stærstu hluhafar Atorku Group hf. í kjölfar nauðasamningsins eru eftirtaldir:

  • NBI hf.            44,20%
  • Íslandsbanki hf.   15,25%
  • Arion Banki hf.     5,00%
  • Glitnir Banki hf.   4,86%
  • Drómi hf.           4,55%

Þá kemur fram að núverandi eignarhlutföll hluthafa munu taka breytingum til lækkunar ef í ljós kemur að öllum kröfum á hendur félaginu hafi ekki verið lýst í tengslum við nauðasamningsferli félagins. Þá ríkir enn óvissa um gildi krafna á hendur félaginu sem byggja á afleiðusamningum þess, en úrlausn þess ágreiningsefnis mun verða vísað til dómstóla.

Eigendur hinna umdeildu krafna munu fá úthlutað hlutafé í Atorku Group hf. í samræmi við nauðasamning félagsins er ágreiningsmálin hafa verið leidd til lykta.