Gengisvísitalan er nú 150,5 stig samkvæmt vef Landsbankans og hefur krónan því styrkst um 3,1% frá opinberri skráningu krónunnar í gær. Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 151,2 stig en var í gær 155,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Þegar þetta er skrifað, kl. 11:05 stendur Evran í 117,6 krónum, Bandaríkjadalur í 75,1 krónum og Sterlingspund í 148,9 krónum.

Þá stóð svissneskur franki í 74,3 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum.