Gengisvísitalan var 164,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 3,8% frá opnun í morgun en 4,4% frá opinberu gengi Seðlabankans á mánudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Lokagildi fyrir daginn í dag miðast þó við markaðsgildi gengisvísitölunnar við lokun markaða.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 159,7 stig var á mánudag 157,3 stig.

Með því að smella á mynd nr. 2 má sjá þróun gengisvísitölunnar frá áramótum.

Krónan hefur aldrei verið jafn veik á þessu ári. Veiking krónunnar frá áramótum nemur nú 26,2% sé miðað við lokagengi á mörkuðum í dag og opinbert gengi við áramót.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 128,1 krónu, Bandaríkjadalur í 82,6 krónum og Sterlingspundið í 161,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,3 krónum og japanskt jen í 0,77 krónum.