Gengisvísitalan er nú 183,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 3,4% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 184,1 stig sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 177,4 stig.

Krónan hefur nú veikst um 6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 96 krónum, Evran í 140 krónum og Sterlingspundið í 176,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 88,3 krónum, japanskt jen í 0,91 krónum og danska krónan í 18,8 krónum.