Krónan hefur veikst um 1% gagnvart evru og kostar evran nú 187,55 krónur. Krónan hefur aldrei áður staðið svo veikt gagnvart evrunni samkvæmt gögnum Bloomberg. Evran kostaði 187,5 krónur 2. desember 2008.  Gengisvísitala krónunnar, sem mælir verðgildi hennar gagnvart gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda Íslands, stendur í 240,4 stigum. Það er hæsta gildi vísitölunnar á þessu ári. Þegar gengisvísitalan hækkar endurspeglar það veikari krónu.