Gengisvísitalan er nú 169 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur aftur á móti veikst um 1,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hefur aldrei verið veikari en við lok markaða í gær þegar gengisvísitalan náði nýju hámarki og var 169 stig við lok markaða. Krónan er búin að dansa við núllið í morgun og hefur ýmist styrkst um 0,3% eða veikst um 0,2%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 169,2 stig og hefur aldrei verið hærra. Opinberg gengi Seðlabankans var í gær 166,3 stig.

Áður hafði gengisvísitalan náð hámarki þann 24. júní s.l. þegar opinbert gengi Seðlabankans var 168,9 stig.

Krónan hefur nú veikst um 4,9% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 90,9 krónum, Evran í 128,3 krónum og Sterlingspundið í 159,8 krónum .

Þá stendur svissneskur franki í 80,4 krónum, japanskt jen í 0,85 krónum og danska krónan í 17,2  krónum.