Seðlabankinn skráði gildi gengisvísitölunnar 218,05 stig nú í morgun og hefur vísitalan ekki verið lægri síðan 6. maí sl. þegar hún var skráð 217,99 stig. Því má segja að krónan hafi ekki verið sterkari síðan í maí.

Krónan styrktist um 0,43% miðað við daginn í gær.