Gengisvísitala krónunnar stendur nú í 220,8 stigum. Veiking krónunnar hefur staðið nær látlaust yfir síðan í byrjun nóvember í fyrra hefur krónan ekki verið veikari síðan í ágúst á síðasta ári.

Krónan var siðast sterkust snemma í nóvember í fyrra og stóð hún þá í tæpum 213 stigum. Þessu samkvæmt nemur veiking hennar síðan þá um næstum 4%. Frá áramótum hefur gengi krónunnar veikst um rúm 1,4%.