Gengisvísitalan er nú 160,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8% frá opnun í morgun og um 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,5 stig en var var á föstudaginn 158,8 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,7 krónum, Evran í 125,5 krónum og Sterlingspundið í 158,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,1 krónu, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.