Gengisvísitalan er nú 160,0 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun í morgun og um 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,1 stig en var í gær 161,9 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,9 krónum, Evran í 124,6 krónum og Sterlingspundið í 158,0 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,3 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,7 krónum.