Gengisvísitalan er nú 159,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,8% frá opnun í morgun en 1,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,7 stig en var í gær 160,9 stig.

Krónan veiktist um 0,8% í gær en hafði fyrr um daginn veikst um 1,2%.

Krónan hefur nú styrkst um 4,2% á einni viku sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 78,8 krónum, Evran í 124,5 krónum og Sterlingspundið í 156,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,1 krónu, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,7 krónum.