Gengisvísitalan er nú 158,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá opnun í morgun og um 0,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,8 stig en var á föstudaginn 160,4 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 78 krónum, Evran í 124 krónum og Sterlingspundið í 156 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76 krónum, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16 krónum.