Gengisvísitalan er nú 202,6% samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist um 5,1% í gær og hefur eins og fyrr segir haldið áfram að veikjast í morgun. Gengisvísitalan hefur aldrei verið hærri en nú.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð miðað við opinert gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 201,2 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 190,5 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 11,7% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 108,6 krónum, Evran í 153,6 krónum og Sterlingspundið í 193,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 97,2 krónum, japanskt jen í 1 krónu og danska krónan í 20,6 krónum.