Gengisvísitalan er nú 190,6 samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,9% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,8% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð miðað við opinbert gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 190,5 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 187 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Þetta er í 10. skiptið sem opinbert gengi slær met í þessum mánuði.

Krónan hefur nú veikst um 4,7% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Hvernig sem lokagengi gengisvísitölunnar fer í lok dags er dagurinn í dag síðasti dagurinn sem opinbert gengi er birt á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Opinbert gengi við upphafi ársfjórðungsins var 160,9 stig en er nú, eins og áður hefur komið fram, 190,6 stig. Þannig hefur krónan veikst um 15,5% sé miðaða við opinbert gengi.

Með því að smella á mynd nr. 2 hér til hliðar má sjá þróun opinberar gengisvísitölu á þriðja ársfjórðungi þessa árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 102 krónum, Evran í 146,3 krónum og Sterlingspundið í 183,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 92,7 krónum, japanskt jen í 0,97 krónum og danska krónan í 19,6 krónum.