Gengisvísitalan var 206,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 2,4% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 2,7% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist um 3,1% í gær og hélt áfram að veikjast eftir að markaðir opnuðu í morgun. Hæst fór gengisvístalan í 213,2 stig og hafði krónan því veikst um tæp 6% innan dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð miðað lokagengi á mörkuðum sem aldrei hefur verið hærra en nú.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 204,7 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 201,2 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 16,3% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 112,8 krónum, Evran í 156,1 krónu og Sterlingspundið í 199 krónum. Sterlingspundið fór um tíma í tæpar 202 krónur í dag.

Þá stendur svissneskur franki í 99,4 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,9 krónum.