Gengisvísitalan var 149 við lok gjaldeyrismarkaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst 0,3% frá opnun markaða í morgun en aftur á móti veikst um 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Krónan veiktist um 1% á mörkuðum í gær og útskýrir það þennan mismun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 149,2 stig var í gær 148,3 stig.

Krónan hefur því veikst um 2,1% í vikunni sé miðað við lokagengi á mörkuðum í dag og opinbert gengi s.l. mánudag.

Miðað við sömu forsendur hefur krónan styrkst um 0,5% frá mánaðarmótum en veiking hennar frá áramótum nemur 18,5%.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 116 krónum, Bandaríkjadalur í 74,5 krónum og Sterlingspundið í 147,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,5 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.