Gengisvísitalan er nú 162,0 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8% frá opnun í morgun og um 2,3% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 162,0 stig en var 158,3 stig í gær.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,7 krónum, Evran í 125,1 krónu og Sterlingspundið í 159,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 76,8 krónum, japanskt jen í 0,8 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.