Gengisvísitalan er nú 161 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá opnun í morgun en um 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 161,2 stig en var í gær 163,8 stig.

Opinbert gengi Seðlabankans í gær hafði ekki verið hærra í tæp sjö ár en í fyrradag náði veiking krónunnar algjöru hámarki þegar gengisvísitalan var 164,5 stig við lok markaða og hafði krónan því veikst um 3,8% frá opnun markaða daginn áður.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 125,9 krónum, Bandaríkjadalur í 80,6 krónum og Sterlingspundið í 159,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 77,8 krónum og japanskt jen í 0,75 krónum