Gengisvísitalan er nú 154 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,9% frá opnun í morgun en 1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 154,4 stig en var fyrir helgi 155,5 stig.

Krónan styrktist um 0,8% á föstudag og hefur nú styrkst um 4,2% sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 76,7 krónum, Evran í 120,2 krónum og Sterlingspundið í 151,1 krónu.

Þá stendur svissneskur franki í 74,5 krónum, japanskt jen í 0,71 krónu og danska krónan í 16,1 krónu.