Gengisvísitalan var við lok markaða 147,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,8% frá opnun markaða í morgun en 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Gengi krónunnar hafði um tíma styrkst um 1,6% í dag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 146,4 stig en var á föstudag 147,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,1 krónu, Bandaríkjadalur í 74,2 krónum og Sterlingspundið í 144,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70,3 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.