Gengisvísitalan er nú 146,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,6% frá opnun markaða í morgun en 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 146,4 stig en var á föstudag 147,7 stig.

Krónan hefur styrkst um 7,6% á einni viku og munaði þar mestu um rúmlega 3% styrkingu hennar s.l. föstudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 114,2 krónum, Bandaríkjadalur í 73,3 krónum og Sterlingspundið í 143,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 70 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum.