Gengisvísitalan er nú 148,1 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og hefur krónan því styrkst um 1,2% frá lokun markaða í gær en 1,3% frá opinberu gengi á miðvikudag.
Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148 stig en var á miðvikudag 150 stig.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.
Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 115,4 krónum, Bandaríkjadalur í 73,9 krónum og Sterlingspund í 146,8 krónum.
Þá stendur svissneskur franki í 71,2 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.