Gengisvísitalan er nú 181,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá gildi gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 182,2 stig sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi en var í gær 180 stig – sem þá var hæsta opinbera gengi frá upphafi. Þetta er í áttunda skipti í þessum mánuði sem gildi opinberrar gengisvísitölunnar slær met.

Krónan veiktist um 3% í gær.

Krónan hefur nú veikst um 3,3% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 95 krónum, Evran í 139,5 krónum og Sterlingspundið í 176,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 87,4 krónum, japanskt jen í 0,90 krónum og danska krónan í 18,7 krónum.