Gengisvísitalan er nú 159 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,1 stig en var í gær 157,1 stig.

Krónan stendur nú í stað sé horft aftur um fimm daga og miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 83,4 krónum, Evran í 121,6 krónum og Sterlingspundið í 152,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,76 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.