Gengisvísitalan er nú 155,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,4% frá opnun í morgun en 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 155,9 stig var í gær 155 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 121,5 krónum, Bandaríkjadalur í 78,7 krónum og Sterlingspundið í 153,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,5 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum