Gengisvísitalan er nú 153,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,4% frá opnun markaða í morgun en 1,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,3 stig var í gær 150,5 stig.

Krónan hefur því veikst um 4,6% milli vikna sé miðað við gengi á mörkuðum í dag og opinbert gengi s.l. þriðjudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,6 krónum, Bandaríkjadalur í 76,6 krónum og Sterlingspundið í 150,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,3 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum