Gengisvísitalan er nú 153,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,5% frá opnun markaða í morgun en 0,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154 stig en var í gær 152,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,6 krónum, Bandaríkjadalur í 77 krónum og Sterlingspundið í 151,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,4 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum