Gengisvísitalan er nú 166,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,2% frá opnun í morgun og um 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 165,8 stig en var á föstudaginn 163,6 stig.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,6 krónum, Evran í 129,8 krónum og Sterlingspundið í 164,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,8 krónum, japanskt jen í 0,8 krónum og danska krónan í 17,4 krónum.