Gengi krónunnar hefur verið að lækka í morgun í fremur litlum viðskiptum eftir því sem fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka í morgun en veiking hennar nemur 0,7%.

Fram kemur að gengi krónunnar var óbreytt yfir daginn í gær en lækkaði nokkuð á þriðjudaginn. Gengisvísitalan er í 236,7 stigum og í sínu hæsta gildi á árinu. Krónan hefur því ekki áður verið lægri á þessu ári. Kostar evran nú tæplega 182 krónur og er hún einungis 6 krónum frá því að vera jafn dýr og hún varð dýrust eftir bankahrunið í október á síðasta ári.

„Eftir tímabil stöðugleika frá því í upphafi júní síðastliðinn hefur krónan verið að lækka í þessari viku samtals um 2,0%,“ segir í Morgunkorni en þá kemur fram að krónan hefur verið að lækka í verði þrátt fyrir mikil gjaldeyrishöft, inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði, umtalsverðan mun á innlendum og erlendum vöxtum og mikinn afgang af vöru- og þjónustujöfnuði við útlönd.

„Lítil trú er á krónunni og talsverðar væntingar um frekari lækkun hennar,“ segir í Morgunkorni.

„Hvorutveggja gerir það að verkum að vilji fjármagnseigenda til að halda krónunni er lítill. Viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri hafa verið lítil og litlar fjárhæðir þarf því til að hreyfa gengi krónunnar nokkuð. Fréttir af hugsanlegri frestun á að annar hluti láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skili sér hefur haft neikvæð áhrif á markaðinn í vikunni. Engar breytingar hafa orðið á gengi krónunnar á aflandsmarkaði í vikunni. Þar kostar evran 220 krónur. Viðskipti þar eru afar lítil og strjál.“