Gengisvísitalan var 158,7 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur aftur á móti veikst um 1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hafði veikst um allt að 0,3% í dag en styrktist eins og fyrr segir undir lok dags og stóð í stað við lok markaða.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 159,1 stig en var í gær 157,1 stig.

Krónan hefur nú styrkst um 0,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 83 krónum, Evran í 121,5 krónum og Sterlingspundið í 152,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,4 krónum, japanskt jen í 0,76 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.