Gengisvísitalan var 159 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en hefur veikst um 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan dansaði í kringum núllið í dag, styrkist í morgun um allt að 0,3% og hafði eftir hádegi veikst um 0,1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,7 stig en var í gær 158,2 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,3 % síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,8 krónum, Evran í 121,9 krónum og Sterlingspundið í 154 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.