Gengisvísitalan er nú 199,8 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og einsfrá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Erfitt er að greina frá þróun krónunnar síðastliðna viku þar sem ekki er ljóst hvert gengi hennar var í raun og veru.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 200 stig, líkt og á föstudag.

Samkvæmt tölum frá Seðlabankanum var opinbert gengi skráð á 230 stig s.l. miðvikudag og er línuritið í takt við það.

Krónan hefur nú styrkst um 3,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 110,5 krónum, Evran í 150 krónum og Sterlingspundið í 190,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 97,5 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,1 krónu.