Gengisvísitalan var 152,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stóð krónan því í stað frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 0,4% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 152,5 stig var fyrir helgi 152,1 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,3 krónum, Bandaríkjadalur í 75,9 krónum og Sterlingspundið í 150 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum