Gengisvísitalan er nú 151,2 stig samkvæmt vef Landsbankans og stendur krónan því í stað frá opinberri skráningu krónunnar í gær. Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 150,3 stig en var í gær 151,2 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Þegar þetta er skrifað, kl. 11:30 stendur Evran í 117,35 krónum, Bandaríkjadalur í 75,4 krónum og Sterlingspund í 149,5 krónum.

Þá stóð svissneskur franki í 74,1 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.