Gengisvísitalan var 156,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,1% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 2,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Krónan veiktist verulega á markaði á föstudag eða um 2,6%. Hún tók að styrkjast örlítið í morgun en veiktist á ný undir hádegi. Í lok dags hafði öll styrking hennar gengið til baka og sem fyrr segir stendur hún nánast í stað.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 155,3 stig en var á föstudag 153,2 stig.

Krónan hefur veikst um 2,2% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 77 krónum, Evran í 122,6 krónum og Sterlingspundið í 153,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,9 krónum, japanskt jen í 0,73 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.