Gengisvísitalan er nú 157,3 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,4% frá opnun í morgun en veikst um 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 157,3 stig var á föstudag 157,2 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 122,4 krónum, Bandaríkjadalur í 79,3 krónum og Sterlingspundið í 155,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,8 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum.