Gengisvísitalan er nú 172,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1,9% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 2,6% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Það sem af er vikunni hefur gildi gengisvísitölunnar slegið met á hverjum einasta degi og krónan veikst í samræmi við það.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 173 stig en var í gær 177,3 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.

Krónan hefur engu að síður veikst um 3% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,5 krónum, Evran í 131,5 krónum og Sterlingspundið í 166,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 82,4 krónum, japanskt jen í 0,86 krónum og danska krónan í 17,6 krónum.