Gengisvísitalan er nú 153,4 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,1% frá opnun markaða í morgun en 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,5 stig var í gær 154,2 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,2 krónum, Bandaríkjadalur í 77,4 krónum og Sterlingspundið í 150,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,8 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum