Gengisvísitalan var 152,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,5% frá opnun markaða í morgun en 1,1% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.
Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,5 stig var í gær 154,2 stig.
Þetta er fyrsti dagurinn síðan 26. maí sem krónan styrkist við lok markaða.
Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119 krónum, Bandaríkjadalur í 76,4 krónum og Sterlingspundið í 149,5 krónum.
Þá stendur svissneskur franki í 73,5 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum