Gengisvísitalan er nú 159 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,6% frá opnun í morgun en 1,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,8 stig en var á föstudag 162 stig.

Krónan hefur veikst um 1,4% síðustu fjóra daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 81,5 krónum, Evran í 122,4 krónum og Sterlingspundið í 156,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,74 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.