Gengisvísitalan er nú 163,4 stig Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,8% frá opnun í morgun en aftur á móti veikst um 2,3% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 163,8 stig en var í gær 159,7stig.

Opinbert gengi Seðlabankans í dag hefur ekki verið hærra í tæp sjö ár en í gær náði veiking krónunnar algjöru hámarki þegar gengisvísitalan var 164,5 stig við lok markaða og hafði krónan því veikst um 3,8% frá opnun markaða í gærmorgun.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 127,6 krónum, Bandaríkjadalur í 82,3 krónum og Sterlingspundið í 162 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 78,9 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum.