Gengisvísitalan er nú 158,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,2% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,7 stig en var í gær 158,2 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,1 % síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,7 krónum, Evran í 121,7 krónum og Sterlingspundið í 153,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,2 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.