Gengisvísitalan er nú 157,6 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 0,7% frá opnun markaða í morgun en 0,2% frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 157,5 stig en var á föstudag 158 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 122,4 krónum, Bandaríkjadalur í 79,1 krónu og Sterlingspundið í 153,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,5 krónum og japanskt jen í 0,76 krónum.