Gengisvísitalan stóð í 112,5 kl. 15.30 í dag og hafði krónan styrkst um 0,79% frá opnun markaða að því er kemur fram í Vegvísi Landsbankans. Í gær nam veltan alls 14,8 milljörðum króna og styrktist krónan um 0,97% yfir daginn og stóð vísitalan í 113,3 stigum við lokun markaða.

Fram til 15:30 í dag hafði velta á gjaldeyrismarkaði numið 24,1 milljörðum króna.