Gengisvísitalan var nú í lok dags 151 stig samkvæmt vef Markaðsvakt Mentís og styrktist krónan því um 0,2% í dag frá opinberu gengi í gær.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 151 stig en í gær 151,3 stig. Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 118,5 krónum, Bandaríkjadalur í 74,2 krónum og Sterlingspund í 146,5 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,3 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum